Tímataka á verkstað
Ýttu á Byrja þegar þú mætir. Síminn staðfestir að þú sért á staðnum og viðskiptavinurinn sér það í skýrslunni.
VAKTO Verk · vakt og verk
Byrjaðu tímatöku á verkstaðnum, taktu myndir og skráðu efni. Viðskiptavinurinn samþykkir verkskýrsluna með einum smelli, og deilur um tímana heyra sögunni til.
„Ég vann miklu meira en þetta.“
„Ég borga ekki fyrir tíma sem ég sá ekki.“
Flestir verktakar þekkja samtalið. Tímarnir eru í kollinum, kvittanirnar í hanskahólfinu og myndirnar týndar í símanum. VAKTO Verk safnar þessu saman á meðan þú vinnur, og viðskiptavinurinn sér allt áður en reikningurinn fer út.
Svona virkar þetta
Opnaðu verkið og ýttu á Byrja. Síminn skráir tímann og staðfestir staðsetninguna.
Myndir, efni, útlagður kostnaður og akstur fara beint á verkið, á nokkrum sekúndum.
Veldu tímabil og sendu hlekk. Viðskiptavinurinn samþykkir og þú veist að reikningurinn verður greiddur.
Það sem viðskiptavinurinn sér
Engin innskráning, ekkert app. Viðskiptavinurinn opnar hlekkinn, sér hverja tímaskráningu með staðfestingu á verkstað, myndirnar, efnið og upphæðirnar — og samþykkir. Þú sérð samþykktina í VAKTO um leið.
Allt sem verktaki þarf
Ýttu á Byrja þegar þú mætir. Síminn staðfestir að þú sért á staðnum og viðskiptavinurinn sér það í skýrslunni.
Taktu mynd fyrir og eftir. Myndirnar fylgja verkskýrslunni sjálfkrafa, engin leit í myndasafninu.
Viðskiptavinurinn fær hlekk, sér tíma, efni, myndir og upphæðir og samþykkir. Nafn og tími eru skráð.
Skráðu efni og útlagðan kostnað á verkið og kílómetra við hverja tímatöku. Allt tekið saman fyrir þig.
Vinna og efni eru aðskilin í skýrslunni og húseigandinn sér hvað hann fær endurgreitt af vsk. af vinnu.
Hver viðskiptavinur með sín verk, tilboð, tíma, rukkað og ógreitt, og minnispunkta. Þú sérð strax hvað á eftir að rukka.
Bættu við starfsmanni eða undirverktaka. Hver skráir sína tíma, þú sérð allt og sendir eina skýrslu.
Sendu tilboð sem viðskiptavinurinn samþykkir sem verksamning með nafni sínu. Samþykkt tilboð verður sjálfkrafa að verki.
Einn smellur: reikningur fyrir verkið verður til í Payday hjá þér, með vinnu og efni sundurliðað, og fer til viðskiptavinarins.
Lýstu verkinu og AI skrifar drög að tilboði. Spurðu „hvað vann ég mikið fyrir Jón í október?“ eða „hvað á ég eftir að rukka?“.
Verð
Einn notandi innifalinn. Hver viðbótarnotandi 1.490 kr.
Engin binding. Rekur þú fyrirtæki með vaktavinnu? Sjá leiðir fyrir fyrirtæki.
Iðnaðarmenn, verktaka og einyrkja sem vinna á tímagjaldi eða í verkum: rafvirkja, smiði, pípara, málara, garðyrkju, þrif, tölvu- og ráðgjafarvinnu. Allt frá einum manni upp í lítið teymi.
Nei. Hann fær hlekk í tölvupósti eða skilaboðum, opnar skýrsluna í símanum og samþykkir eða biður um lagfæringu.
Nei. Staðsetningin er aðeins lesin þegar þú byrjar og stöðvar tímatöku, til að staðfesta að þú hafir verið á verkstaðnum. Engin stöðug rakning.
Já. Allt sem er í appinu er líka á vakto.is: verk, tímar, efni, myndir og skýrslur.
Skýrslan reiknar vsk. sjálfgefið. Stillingar fyrir þá sem eru undir veltumörkum eru á leiðinni. Hafðu samband og við hjálpum þér.
Já. Tengdu Payday í Stillingum og búðu til reikning fyrir verk með einum smelli. Reikningurinn verður til í Payday hjá þér og fer í tölvupósti til viðskiptavinarins.
Nei. 14 daga frí prufa og svo mánaðarleg áskrift sem þú getur sagt upp hvenær sem er.