Fara beint í efni

Tengingar

Tengist kerfunum
sem þú notar nú þegar.

Hér er listinn eins og hann er í dag: kerfin sem VAKTO tengist í alvöru, hvaða gögn fara á milli og hvernig þú tengir þau. Það sem er á leiðinni er merkt þannig.

Sjá allar tengingar ↓

Meira en útflutningur

Flest vaktakerfi flytja út tíma.
VAKTO reiknar launin.

Tenging við launakerfi er góð, en hún er bara síðasta skrefið. VAKTO sér um það sem gerist á undan, svo það sem fer í launakerfið er þegar rétt.

  • Laun eftir kjarasamningiDagvinna, yfirvinna, álag, orlof og uppbætur reiknuð úr stimplunum, eftir samningi hvers starfsmanns.
  • LaunaseðlarStarfsfólk sér launaseðilinn og áætluð laun í appinu, sundurliðað.
  • RáðningarsamningarSamningur fylltur út úr gögnum starfsmannsins og undirritaður rafrænt í símanum.
  • Spjall og fréttaveitaRásir per deild og stað, og fréttir fyrir allan hópinn, í sama appi og vaktirnar.
  • VAKTO AISetur upp vaktaplan, svarar með þínum tölum og spyr alltaf áður en hann breytir nokkru.

Laun og bókhald

VAKTO reiknar launin. Launakerfið sér áfram um staðgreiðslu, skil og greiðslur.

Payday

Laun og bókhald
Virkt

Samþykktir tímar fara beint inn í launakeyrslu í Payday sem tímaskrá, með einum smelli. VAKTO Verk býr líka til reikninga í Payday.

  • Frá VAKTO: Tímar per starfsmann: dagvinna, yfirvinna og álag eftir prósentu
  • Frá VAKTO: Reikningar fyrir verk (VAKTO Verk)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Payday-aðgang með API (Client ID og Client Secret)
  • Launaliði í Payday sem heita eins og í VAKTO (Dagvinna, Yfirvinna, Álag 33% …)
  1. Í Payday: Stillingar → Fyrirtæki → API. Búðu til aðgang og nefndu hann VAKTO.
  2. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → Payday → Tengja. Límdu inn Client ID og Client Secret.
  3. Í Launakeyrslum birtist „Senda í Payday“. Samþykktir tímar tímabilsins fara inn sem tímaskrá.
  4. Viltu frekar skrá? Launakeyrslur → Flytja út → Payday gefur Excel-skrá sem Payday les inn.

DK

dk Laun og dkPlus
Virkt

Tímarnir fara í launakeyrslu dk Laun með CSV-innlestri, skipt á launaliði og deildir. Veltan getur komið sjálfkrafa úr bókhaldinu í dkPlus.

  • Frá VAKTO: CSV fyrir launakeyrslu dk Laun: kennitala, deild og tímar per launalið
  • Inn í VAKTO: Daglega velta úr tekjureikningum bókhaldsins (dkPlus, valfrjálst)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Númer launaliða í dk Laun (dagvinna, yfirvinna, hvert álag)
  • Deildanúmer ef þú skiptir launum á deildir
  • Aðgangslykil í dkPlus ef veltan á að koma sjálfkrafa
  1. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → DK → Stilla. Settu inn númer launaliða og deilda úr dk Laun.
  2. Launakeyrslur → Flytja út → DK sækir CSV-skrá fyrir tímabilið.
  3. Í dk Laun: opnaðu launakeyrsluna og veldu „Lesa úr CSV-skrá inn í launakeyrslu“.
  4. Valfrjálst: límdu inn aðgangslykil úr dkPlus í sama glugga til að sækja veltuna daglega.

Business Central

Microsoft Dynamics 365 og LS Central
Virkt

Veltan kemur daglega úr fjárhagnum og launakeyrslan er bókuð sem ein samantektarfærsla í færslubók, sem bókarinn bókar sjálfur.

  • Frá VAKTO: Launabókun: laun, launatengd gjöld, staðgreiðsla, lífeyrissjóðir, stéttarfélög, tryggingagjald og orlofsskuld
  • Inn í VAKTO: Daglega velta úr fjárhagnum
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Aðgang að Azure (Microsoft Entra ID) til að skrá forrit
  • Heimildasett D365 READ (velta) eða D365 ACCOUNTANTS (velta og launabókun)
  1. Í Azure: App registrations → New registration, nefndu það VAKTO. Afritaðu Application (client) ID og Directory (tenant) ID.
  2. API permissions → Dynamics 365 Business Central → API.ReadWrite.All → Grant admin consent. Búðu til client secret.
  3. Í Business Central: „Microsoft Entra Applications“ → New. Settu inn Client ID, State: Enabled og heimildasettið.
  4. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → Business Central → Tengja. Svo „Launabókun“ til að velja bókhaldslyklana.

Excel · CSV · PDF

Útflutningur og innlestur
Virkt

Fyrir launakerfi sem eru ekki á listanum: launakeyrslan, tímaskrár og skýrslur fara út í Excel eða PDF, og velta kemur inn úr CSV-skrá.

  • Frá VAKTO: Launakeyrsla og tímar í Excel
  • Frá VAKTO: Skýrslur í Excel og PDF
  • Inn í VAKTO: Velta úr CSV-skrá (dagsetning og upphæð), t.d. saga úr kassakerfinu
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Ekkert. Innifalið í öllum leiðum með launum
  1. Launakeyrslur → Flytja út → Excel.
  2. Velta: Stillingar → Tengingar → Annað kerfi? → Hlaða upp skrá.

Velta

Laun sem hlutfall af veltu þarf veltutölur. Þær koma sjálfkrafa úr kassanum, netversluninni eða bókhaldinu.

Shopify

Netverslun
Virkt

Velta úr pöntunum sótt sjálfkrafa á hverjum degi, svo laun % af veltu sé alltaf rétt. VAKTO les aðeins pantanir, aldrei kortaupplýsingar.

  • Inn í VAKTO: Daglega velta úr pöntunum (90 daga saga við fyrstu tengingu)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Shopify-verslun og réttindi til að búa til app (read_orders)
  1. Í Shopify: Settings → Apps and sales channels → Develop apps → Create an app. Nefndu það VAKTO.
  2. Configure Admin API scopes: hakaðu við read_orders og vistaðu. Smelltu á Install app.
  3. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → Shopify → Tengja. Límdu inn slóð verslunar og Admin API access token.

WooCommerce

Netverslun á WordPress
Virkt

Velta úr pöntunum sótt daglega með lykli sem hefur aðeins lesaðgang.

  • Inn í VAKTO: Daglega velta úr pöntunum (90 daga saga við fyrstu tengingu)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Stjórnandaaðgang að WordPress
  1. Í WordPress: WooCommerce → Settings → Advanced → REST API → Add key.
  2. Nefndu lykilinn VAKTO, veldu Permissions: Read og smelltu á Generate API key.
  3. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → WooCommerce → Tengja. Límdu inn slóð, Consumer key og Consumer secret.

INVENTRA

Framleiðsla og sala
Virkt

Systurkerfi VAKTO fyrir framleiðendur ferskvöru. Salan fer beint inn sem velta.

  • Inn í VAKTO: Velta úr INVENTRA
Svona tengirðu
Þú þarft
  • INVENTRA-aðgang og lykil úr VAKTO
  1. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → INVENTRA → Búa til lykil.
  2. Settu lykilinn inn í INVENTRA. Veltan kemur inn sjálfkrafa eftir það.

API · Zapier · Make

Opið API, Zapier og Make
Virkt

Ertu með kerfi sem er ekki á listanum? Sendu veltuna beint í VAKTO með lykli, úr eigin kóða eða gegnum Webhooks í Zapier eða Make.

  • Inn í VAKTO: Velta per dag og stað (POST /api/v1/revenue)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • API-lykil úr VAKTO (þú getur afturkallað hann hvenær sem er)
  1. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → Búa til lykil.
  2. Sendu POST á /api/v1/revenue með Authorization: Bearer og { date, amount, location }.
  3. Í Zapier eða Make: notaðu „Webhooks“ með sömu slóð og lykli.

Samningar og undirritun

Ráðningarsamningar og starfslok undirrituð rafrænt, án pappírs.

Taktikal

Rafræn undirritun
Virkt

Ráðningarsamningar og starfslok undirrituð í símanum. Undirritun með kóða í tölvupósti er alltaf innifalin; fullgild undirritun með rafrænum skilríkjum fer í gegnum Taktikal.

  • Frá VAKTO: Samningur til undirritunar
  • Inn í VAKTO: Undirritað eintak, fingrafar skjals og undirritunarskrá
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Ekkert fyrir kóða í pósti
  • Rafræn skilríki: íslensk rafræn skilríki hjá báðum aðilum
  1. Í VAKTO: Stillingar → Reglur og laun → Undirritun samninga. Veldu kóða í tölvupósti eða rafræn skilríki (Taktikal).
  2. Sendu samninginn úr spjaldi starfsmannsins. Báðir undirrita og fá undirritað eintak í pósti.

Gervigreind og forritarar

Tengdu þín eigin tól, með lyklum sem þú stjórnar.

Claude · ChatGPT

Claude, ChatGPT og MCP
Virkt

Spurðu um vaktirnar, tímana og laun % í þínu eigin gervigreindarforriti. Lesaðgangur, og ef eigandi leyfir geta forritin líka sett inn vaktir og samþykkt beiðnir, alltaf með samþykki notandans. Þau fá aldrei kennitölur, bankareikninga eða heimilisföng.

  • Frá VAKTO: Vaktir, tímar, velta og laun % (aðeins lestur)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Claude, ChatGPT eða annað forrit sem styður MCP-tengingar
  • Eigandi fyrirtækisins kveikir á tengdum forritum
  1. Í VAKTO: Stillingar → Tengingar → Tengd forrit → Leyfa gervigreindarforrit (eigandi).
  2. Afritaðu slóðina og bættu henni við sem tengingu (connector) í Claude eða ChatGPT.
  3. Skráðu þig inn með VAKTO og samþykktu aðganginn. Þú getur aftengt hvenær sem er.

Fyrir starfsfólkið

Vaktirnar og skírteinið þar sem starfsfólkið er nú þegar: í símanum.

Apple & Google Wallet

Apple Wallet og Google Wallet
Virkt

Starfsmannaskírteinið með mynd, stöðu og QR-kóða í símanum. Kóðinn stimplar inn á spjaldtölvunni við innganginn.

  • Frá VAKTO: Starfsmannaskírteini í Wallet
Svona tengirðu
Þú þarft
  • iPhone eða Android-síma
  1. Starfsmaðurinn opnar skírteinið í VAKTO-appinu og velur „Bæta í Wallet“.

Google, Apple og Outlook

ICS
Virkt

Vaktirnar birtast í dagatalinu í símanum og uppfærast sjálfar þegar planið breytist.

  • Frá VAKTO: Vaktir starfsmanns sem dagatal (ICS)
Svona tengirðu
Þú þarft
  • Dagatal sem getur gerst áskrifandi að slóð
  1. Í VAKTO: Planið → Setja vaktir í dagatal → Afrita tengil.
  2. Í dagatalinu: bættu við dagatali „Frá vefslóð“ og límdu tengilinn.

Á leiðinni.

Þessar tengingar eru í vinnslu eða á listanum. Engin þeirra er tilbúin enn, og við merkjum þær ekki sem slíkar fyrr en þær virka.

Norræn launakerfi

Danmörk, Svíþjóð og Noregur

Laun eftir norrænum kjarasamningum og tengingar við launakerfi þar. Við forgangsröðum eftir því hvað viðskiptavinir nota.

Á leiðinni

Uniconta

Bókhald

Velta og launabókun.

Á leiðinni

H3 Laun

Laun

Tímar beint í launakeyrslu.

Á leiðinni

Microsoft 365 og Entra ID

Innskráning

Innskráning með vinnuaðgangi og notendur úr Entra ID.

Á leiðinni

Fortnox

Bókhald og laun

Svíþjóð og Noregur.

Á leiðinni

Noona

Kassakerfi og bókanir

Velta úr kassanum og bókanir fyrir veltuspá.

Á leiðinni

Dineout

Kassakerfi og bókanir

Velta og bókanir fyrir veltuspá vaktaplansins.

Á leiðinni

Regla

Bókhald

Velta úr bókhaldinu.

Á leiðinni
Notarðu annað kerfi? Segðu okkur hvaða kerfi það er. Það sem flestir biðja um fer fremst í röðina.
Senda okkur línu

Prófaðu VAKTO með þínum kerfum.

14 daga frí prufa, engin binding. Flestar tengingar taka innan við mínútu.

Prófa frítt

Sjá verð →