Kjarasamningar opinberra innbyggðir
SNS–BSRB, Ríki–Sameyki og Reykjavíkurborg. Vaktaálag, yfirvinna, orlof og veikindaréttur reiknast eftir samningi hvers starfsmanns.
Sveitarfélög og stofnanir
Hjúkrunarheimili, búsetuþjónusta, sundlaugar, leikskólar og aðrar vaktavinnustofnanir. VAKTO heldur utan um vaktaplanið, stimplunina og launaútreikninginn á einum stað, og starfsfólkið er með allt í símanum.
Betri vinnutími og vaktahvati
eiga ekki að kalla á Excel.
Reglurnar í kjarasamningum opinberra starfsmanna eru flóknar og breytast. Í VAKTO eru þær hluti af kerfinu, svo launafulltrúinn fer yfir niðurstöðuna í stað þess að reikna hana.
Það sem er innifalið
SNS–BSRB, Ríki–Sameyki og Reykjavíkurborg. Vaktaálag, yfirvinna, orlof og veikindaréttur reiknast eftir samningi hvers starfsmanns.
Vinnuskylda styttist sjálfkrafa eftir vaktabyrði, úr 36 stundum niður í allt að 32, eins og kjarasamningar kveða á um.
Reiknaður yfir uppgjörstímabil út frá vöktum utan dagvinnu, svo starfsfólk fær það sem því ber án handreikninga.
Ef útgefinni vakt er breytt með stuttum fyrirvara skráir kerfið það og reiknar breytingargjald samkvæmt samningi.
Vaktir, stimplun, frí, vaktaskipti og launaseðlar í símanum, á íslensku, ensku, pólsku og víetnömsku.
Stjórnendur og launafulltrúar samþykkja tíma, leyfi og leiðréttingar á einni síðu, í tölvu eða síma.
Öryggi og persónuvernd
Gagnagrunnurinn er á Írlandi og öll gögn eru dulkóðuð í flutningi og geymslu.
Vinnslusamningur og listi yfir undirvinnsluaðila eru opinber. Lesa samninginn
Slökkvið á gervigreind, tengdum forritum eða API með einum rofa. Kennitölur og bankareikningar eru faldir fyrir gervigreind.
Aðgerðaskrá sýnir hver gerði hvað og hvenær, líka hvert einasta kall frá gervigreind og tengdum forritum.
Verð
Ekkert gjald fyrir að byrja. Þið greiðið fyrir fjölda starfsmanna, ekki fyrir uppsetninguna.
Sveitarfélög, stofnanir og vinnustaðir með yfir 500 starfsmenn fá alltaf lægra verð á starfsmann.
Einn reikningur á ári, sem einfaldar innkaup og fjárhagsáætlun.
App fyrir starfsfólk og uppfærslur kjarasamninga fylgja verðinu. Fá tilboð
Já. VAKTO getur séð um vaktir og tíma og flutt niðurstöðuna út í launakerfið, til dæmis H3. Þið getið líka látið VAKTO reikna launin.
Við setjum upp deildir, starfsfólk og kjarasamninga með ykkur, byrjum á einni deild og bætum svo við. Innleiðingarhandbók og VAKTO AI leiða stjórnendur í gegnum hvert skref.
Aðeins ef þið viljið. Gervigreindin er valkvæð og hægt er að slökkva á henni fyrir stjórnendur, starfsfólk eða alveg. Gögn eru ekki notuð til að þjálfa gervigreind.
Það fer eftir fjölda starfsmanna. Það er ekkert stofngjald, vinnustaðir með yfir 500 starfsmenn fá alltaf lægra verð á starfsmann og gert er upp ár í senn. Sendu okkur línu og við gerum tilboð.
Já. Við setjum upp prufuumhverfi og berum útreikninginn saman við launaseðlana ykkar áður en nokkuð er tekið í notkun.