
Ég bjó til kerfið sem mig vantaði.
Bjarni Lúðvíksson, stofnandi VAKTO
Ég hef komið að rekstri á mörgum sviðum: veitingastöðum, framleiðslueldhúsi, ferðaþjónustu og gistiheimilum. Í öllum þeim rekstri fann ég aldrei almennilegt kerfi sem hentaði og var einfalt í notkun, bæði fyrir mig og starfsfólkið.
VAKTO er svarið við því sem fór í taugarnar á mér árum saman.
Ráðningarsamningar týndust.
Nú verður samningurinn til úr gögnum starfsmannsins, báðir undirrita rafrænt og undirritað eintak er geymt á einum stað.
Starfsmannaskírteinin gleymdust.
Það er ekki gott þegar eftirlitsaðilar koma í heimsókn. Nú er skírteinið í símanum hjá öllum, í Apple og Google Wallet.
Reglur og HACCP náðu ekki til allra.
Nú eru þær í vasanum hjá öllu starfsfólki, sem getur auðveldlega nálgast þær og skoðað.
Yfirvinnan kom í ljós um mánaðamót.
Nú sé ég laun sem hlutfall af veltu og frávik á einfaldan hátt, og raunverulegan kostnað í rauntíma þegar vikið er frá vaktaplaninu.
Kjarasamningar og skilmálar tóku tíma.
Nú hjálpar gervigreind að finna rétta kjarasamninginn og semja skilmála á faglegan hátt. Þeir fara beint í ráðningarsamninginn, sem er undirritaður rafrænt.
„Ég var alltof oft að taka eftir öllum yfirvinnutímunum hjá starfsfólkinu þegar mánuðurinn var gerður upp. Nú er það út sögunni.“
Prófaðu VAKTO í þínum rekstri.
14 dagar frítt, engin binding. Eða sendu mér línu á hallo@vakto.is.
Prófa frítt