Hvað telst virkur starfsmaður?
Starfsmaður sem var á vakt eða stimplaði sig inn í mánuðinum. Skráð starfsfólk sem vinnur ekki, t.d. sumarstarfsfólk yfir veturinn, kostar ekkert þá mánuði.
Get ég skipt um leið?
Já, hvenær sem er í Stillingum, upp eða niður. Ef starfsfólkinu fjölgar segir VAKTO þér þegar næsta leið verður ódýrari.
Hvað gerist ef AI-spurningarnar klárast?
VAKTO AI hvílir til næstu mánaðamóta. Allt annað í kerfinu virkar áfram. Stjórnandi getur kveikt á viðbót, 1.490 kr fyrir hverjar 50 spurningar, og sett hámark á mánuði svo reikningurinn komi aldrei á óvart.
Er binding?
Nei. Þú segir upp í Stillingum og áskriftin gildir út greitt tímabil. Árgreiðsla gefur 15% afslátt.
Fylgir launakeyrslan kjarasamningum?
Já. Álag, yfirvinna, orlof og uppbætur eru reiknuð eftir kjarasamningi hvers starfsmanns, og tímarnir fara beint í Payday eða út í Excel og DK.
Er Frítt í alvöru frítt?
Já. Fyrir allt að 5 starfsmenn á einum stað, án tímamarka og án korts. Þú færð vaktaplanið á vefnum, getur deilt því sem PDF eða hlekk og starfsfólkið fær vaktirnar í tölvupósti. App, stimpilklukka og laun fylgja frá Grunni.
Hvað gerist með núverandi áskrift?
Núverandi viðskiptavinir halda eldra verði í 12 mánuði ef það er lægra. Við látum vita með fyrirvara áður en nokkuð breytist.
Hvernig virkar prufan?
Í 14 daga færðu allt sem fylgir Vexti, frítt. Að prufunni lokinni velur þú leið, eða ferð á Frítt ef það dugar.