Eyða aðgangi
Síðast uppfært 21. október 2026. BGL Ventures ehf., kt. 490806-0400, hallo@vakto.is
Þú getur hvenær sem er beðið um að aðgangi þínum að VAKTO verði eytt. Það er gert á annan hvorn veginn hér að neðan.
1. Í appinu
Opnaðu VAKTO-appið og farðu í Ég → Stillingar → Eyða aðgangi. Staðfestu með Eyða aðganginum mínum. Aðganginum er lokað strax og þú ert skráð(ur) út.
2. Með tölvupósti
Sendu póst á hjalp@vakto.is frá netfanginu sem aðgangurinn er skráður á og biddu um eyðingu. Við staðfestum móttöku og lokum aðganginum.
Ef þú ert eigandi fyrirtækis í VAKTO skaltu hafa samband á hjalp@vakto.is, því þá þarf einnig að ganga frá fyrirtækinu og gögnum starfsfólks.
3. Hvað er eytt
Aðganginum er lokað strax og ekki er lengur hægt að skrá sig inn. Persónuupplýsingum þínum (t.d. innskráningu, prófíl, mynd, síma, spjalli og tilkynningastillingum) er eytt innan 30 daga frá beiðninni.
4. Hvað er geymt og hve lengi
Gögn sem vinnuveitandinn þarf lögum samkvæmt að geyma, svo sem launa- og tímaskráningar, launaseðlar og undirritaðir ráðningarsamningar, eru geymd eins lengi og lög krefjast (t.d. bókhaldslög). Vinnuveitandinn er ábyrgðaraðili þeirra gagna og VAKTO geymir þau fyrir hans hönd. Þeim er eytt þegar varðveisluskyldu lýkur.
5. Spurningar
Nánar um meðferð persónuupplýsinga í persónuverndarstefnunni. Spurningar sendast á hjalp@vakto.is.